26.2.2010 | 10:22
Þjóðaratkvæðagreiðsla, til hvers...??
Það er eiginlega alveg fáránleg staða, sem upp er komin í Icesave málinu. Þjóðaratkvæðagreiðsla á að fara fram 6. mars um lög, sem eru byggð á samkomulagi, sem er lélegra en það tilboð sem liggur á borðinu í dag! Hverju skiftir þessi þjóðaratkvæðagreiðsla þá..?? Akkúrat engu..!! Hreinlega verið að henda peningum í ekki neitt, til að þóknast Bessastaðabóndanum og stjórnarandstöðunni.
Það er kominn tími til að Íslendingar hætti að láta Sjálfstæðis- og Framsóknarmenn, með aðstoð "InDefense" jakkafataklíkunnar, draga sig á asnaeyrum fram af bjargbrúninni. Nú er kominn tími til að setja punktum aftan við þetta mál og klára það. Ef ekki, þá á þetta eftir að kosta þjóðina meira í framtíðinni, vegna vantrausts og þarafleiðandi lélegra kjara á erlendum lánum ásamt erfiðleika á erlendum mörkuðum, en bara það sem liggur í sjálfum Icesave reikningnum. Þarmeð gæti leiðin útúr kreppunni orðið ansi torsótt og löng. Menn verða að gera sér grein fyrir því, að þó að reynt verði áfram að ná betri kjörum og það takist eftir einhverja mánuði, þá mun það verða landanum óhemju dýrt þegar lengra er litið. Íslendingar eru það háðir útflutningi og erlendu fjármagni, að þeir hafa hreinlega ekki efni á, að eyðileggja allan "Goodwill" í sinn garð, hjá öðrum þjóðum.
Ekki er ég neinn stjórnmála- eða stjórnsýslufræðingur, en það sem ég myndi álíta einu lausnina í núverandi stöðu, ef hægt væri, er að ganga að nýjasta tilboði Breta og Hollendinga, afturkalla lögin frá des 2009 (sem á að kjósa um 6. mars), leggja fram nýtt frumvarp til laga, byggt á þessum nýja samningi og fá það samþykkt á Alþingi. Svo má alveg ræða það, hvort þetta yrði svo lagt undir dóm almennings, þó að ég sé nú reyndar þeirrar skoðunar, að svona mál eigi ekki heima í þjóðaratkvæðagreiðslu.Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)